mánudagur, september 10, 2007

Sæl og blessuð öll

Jú, nú er enn einu sinni komið að útlandabloggi. Ég er komin aftur til Bristol enn eina ferðina. Hér er sól og sumar, kjólar og pils. Tjallinn er bara í góðu skapi og ekki mikið breyst síðan ég var hér síðast, tja fyrir utan reykingabannið sem hefur skilið pub-ana eftir illalyktandi af líkamslykt og hálfkláruðum samtölum. Gerir svo sem ekki mikið til!

Nú sit ég ýmist í eldhúsinu mínu eða garðinum og stimpla inn í tölvuna innan um snigla sem eru á stærð við höfuðið á barbie og drekk te. Ég bregð mér nú líka stöku sinni af bæ, búin að fara á mini festival í Cheltenham, matarboð, syngja í karíókí og ég veit ekki hvað og hvað.

Núna bý ég í þriggja hæða húsi með fimm öðrum, allt yndælis fólk. Um mánaðarmótin munu ég og Chris svo bregða undir okkur betri fótunum og skokka með búslóðina ca. 10 mínútur upp brekkuna og þar ætlum við að vera næstu 6 mánuðina a.m.k. í tveggja herbergja íbúð. Þá getið þið farið að bóka gistingu.

kossar frá útlöndum Bústna

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim