Halló heimur!
Ég er búin að vera úti á landi í Manchester og London og ekki verið með nettengingu. Var að vinna í Manchester, síðasti spretturinn áður en ég held af landi brott. Það gekk bara eins og í sögu nema ég týndi Jim vinnufélaga mínum í þrjá klukkutíma og fann hann loks inni í vegg þar sem hann hafði læsts inni. Ég hló mig máttlausa og átti því í mesta basli að bjarga manninum en kallaði loks á hjálp og allt fór vel að lokum.
Í London fór ég á djammið með vöskum hópi Londonbúa, svaf á ófáum svefnsófum um alla borg, eina nótt í suðurlondon, eina í Bethnal Green eina í Hackney og þrjár í Finsbury park (ekki í garðinum sjálfum samt). Verslaði mér bækur ( en sneyddi á snilldarhátt hjá topshop, og hélt fyrir eyrun á oxford circus) , át ólívur og ansjóvur (alveg að verða fullorðin) og lærði um keramik á safninu. Seinasti spretturinn þar líka áður en ég kem heim til að finna út hvaða diska og bolla skólapiltar í Skálholti áttu og hvaðan þeir komu .... spennó finnst ykkur ekki???
Komst að því að uppgröfturinn í Karabískahafinu sem mér býðst vinna við skarast við Skálholt og því verður ekkert af honum... en hver vill svo sem vera á einhverri karabískri eyju í steikjandi hita þegar hann getur verið í svala sumargustinum í Skálholti!!!
Nú styttist óðfluga í að ég lendi á Íslandsströndum en fyrst mun stúdent Hildur heimsækja mig og þá verður sko dansað!!!
Njótið sumarblíðunar börnin mín

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim