þriðjudagur, maí 16, 2006

Ég er hætt að hefna mín, það er ekki fallegt! og Johnny setti líka sjónvarpið sitt inn í eldhús sem var fallega gert af honum, því það er svoo erfitt að lesa þegar ég þarf ekki að skila neinu fyrr en 15. sept. Svo nú hef ég eytt síðustu dögum í sófanum inni í eldhúsi með fjarstýringuna í annarri og sjónvarpsvísinn í hinni. Smá samviskubit hefur tekið sér bólfestu en ég hef verið sjónvarpslaus í 7 mán og þarf að vinna upp mikið tap.

Annað sem er skemmtilegt við sjónvarpið er að nú hafa meðleigendur mínir greiðan aðgang að mér og þakka mér fyrir að vaska upp og svona... voru kannski ekki vanþakklátir þegar allt kemur til alls bara feimnir ... og svo er ég líka orðinn þeirra helsti ráðgjafi í málefnum kynjanna (þeir eru ekki enn búnir að fatta að þar sem ég eyði mestum tíma mínum fyrir framan sjónvarpið þá sé ég kannski ekki neinn viskubrunnur í þessum efnum).
Nú túlka ég sms hægri vinstri, gagnrýni ljóð, ráðlegg um tíma sem líða skal á milli sms-a og hvernig skuli svara þegar stúlkan segir t.d. "já þú mátt alveg koma núna en ég verð kannski sofnuð xx" eða "vinir mínir eru að koma og við ætlum að reykja xx" þegar umræddur meðleigandi er algerlega á móti reykingum en samt skotin í stelpunni!!!
"Hvað eiga að vera mörg x ef hún setur bara eitt, á ég að setja tvö"
"æ viltu lesa þetta ég skil ekki alveg" eru setningar sem eru orðnar daglegt brauð í íbúð 202
Þeir eru nú bara rétt rúmlega tvítugir þessar elskur.... ég geri mitt besta í að vera skilningsrík og miðla af minni ekki svo skilvirku reynslu!!!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim