laugardagur, apríl 22, 2006


Gleðilega liðna páska og komandi sumar - takk fyrir veturinn!!

Jæja Tóta og Matti komu loksins og við skemmtum okkur konunglega í heila 10 daga. Mestum tímanum eyddum við í Bristol en vorum eina nótt í London áður enn við kvöddumst á Kings Cross.
Þetta var svona hefðbundin Íslendinga heimsókn með óteljandi búðarferðum og barsetu fram á kvöld. Við prófuðum ófáa veitingastaði og ég og Tóta gerðumst meira að segja svo frægar að fá okkur ocra súpu á líbönskum stað.... held ég geti talað fyrir okkur báðar þegar ég segi að það muni ekki gerast aftur.
Nú er ég semsagt gengin upp að hnjám, þekki hverja einustu flík í HogM og öllu fróðari um veitingahúsin í Bristol!

Ég er búin að panta flug heim 15. júní, byrja í Skálholti þann 19. og skrifa svo lokaritgerðina í hjáverkum - hlakka mikið til að njóta íslensku sumarnæturinnar (nóttarinnar(?)) með ykkur öllum!!
Á nú eflaust eftir að láta heyra í mér áður en það gerist, en látum þetta gott heita í bili.

ps. ég setti inn myndir af heimsókninni á myndasíðuna

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim