Það rignir bara og rignir hérna ... gott fyrir gróðurinn!
Ég er alveeeg að verða búin með alla verkefnavinnuna mína og þá er bara að tjilla með tjallanum (og byrja á mastersritgerðinni)...
Eldhúsið mitt er skínandi hreint of vitiði hvað, ég þreif það ekki! Undur og stórmerki hafa gerst. Svo virðist að með hækkandi sól hafi kynhvötin farið að segja til sín hjá meðleigendum mínum sem nú skiptast á að bjóða stúlkum í kotið okkar og elda ofan í þær. Og já áður en þær koma þá er ryksugan rifin upp undan rykábreiðunni og skúringakústinum (sem er reyndar bara svampur á priki) dýft í sápuvatn.
Þetta er hið merkilegasta fyrirbæri finnst mér. Hingað til hafa það verið pizzur inn í örbylgjuofn og súpur úr niðursuðudósum sem hafa haldið drengjunum uppi en nú eru það kartöflur, aspas og kjúklingaréttir og Paul er farinn að baka annan hvern dag!!!
Ég brosi bara breitt til þeirra sem ég skýst inn í eldhús til að henda bökuðum baunum á ristabrauðið mitt. Hendi svo dósinni í ruslið þannig að það slettist aðeins upp á vegg og nota svo engan disk undir ristabrauðið þannig að það myndist fínn svita og mylsnu blettur á bónuðu borðinu ... dagur hefnda og réttlætis hefur runnið upp!!!
yfir og út

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim