sunnudagur, nóvember 06, 2005

Í gær 5. nóvember voru 400 ár síðan Guy Fawkes of félagar reyndu að sprengja upp þinghúsin í London. Ég tók að sjálfsögðu þátt í hátíðarhöldum með Bristolbúum og skellti mér á þessa líka prýðis flugeldasýningu og brennu. Flugeldasýningin stóð yfir, örugglega í 20 mín (sem eru um það bil 5 björgunarsveitar sýningar). Hátíðarhöldin voru í risastórum garði þar sem tívolíi hafði verið slegið upp með tilheyrandi candy floss- og poppkornssölustöndum. Ég fór bara í eitt tæki, draugahús með þýska vini mínu Jóhannesi - hef aldrei verið mikið fyrir að vera í hæstu hæðum og snúast eins og marengesdeig. Svo fór að rigna svo við skelltum okkur inn á pub - afbragðsgott kvöld.
Dagurinn hófst svo með enskum morgunmat á the Boston Tea Party, klukkan tíu, þar sem atburðir næturinnar voru rifjaðir upp og mikið hlegið en það rignir enn svo ég ætla að halda mig innan dyra það sem eftir lifir dags, glugga í bók og kúra undir sæng.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim