Ég er ekki lengur í Karabískahafinu og ekki heldur í Cambridge. Nú er ég aftur komin til Aberdeen og búin að vera hér í tæpan mánuð. Ég bý hjá leiðbeinandanum mínum henni Karenu en eftir rétta viku skrepp ég til Calgary í Kanada til að halda tvær tölur og þegar ég kem til baka flyt ég inn í íbúð Neils og Keiths þar sem hvorugur þeirra verður heima. Ég er sannkölluð flökkukona. Ég get borðið búslóðina á bakinu á mér en verð þó fljótt vegmóð.
Ég er búin að tilkynna skiladag. Föstudaginn 13. apríl varð fyrir valinu og ég get hreinlega ekki ímyndað mér hvernig það verður að vakna að morgni þess 14. og vera ritgerðarlaus. Ég ætla að vera eitthvað frameftir vori hjá Tjallanum, þarf að gæsa vinkonu mína, fara á ráðstefnu, í brúðkaup og svo þarf ég víst að verja herlegheitin.
Það er bara þannig. Vildi bara melda mig inn....

6 Ummæli:
Þú ert flökkukind Ágústa. það verður snilld hjá þér að vera búin með lærdóminn allan þann 13 apríl. Þá er bara að smæla framan í heiminn eftir það :-)
kv. frá Selfossi
Halli
Takk fyrir meldinguna Ágústa mín, gott að vita að þú ert farin að sjá fram fyrir ritgerð ;-) gasalega held ég að 14. apríl renni upp bjartur og fagur hjá þér.
Góða ferð til Calgary og passaðu bara að týna ekki tölunum.
bestu kveðjur,
S9gga
Mikið áttu nú gott Ágústa mín að vera farin að sjá lokadagsetningu framundan... Þetta gerist sumsé fyrr eða síðar! Gangi þér vel með tölurnar þínar í Kanada.
Edda moster
Gússa smúsa
Þetta er aldeilis viðburðarík framtíð, ég hlakka bara til að fá þig heim í kot.
kv tóta
Frábært að allt gengur vel, spennandi tíma framundan. Ég ætla að skála í mjólk þér til heiðurs þann 13.apríl.
Gangi þér vel í Kanada og á lokasprettinum, ævintýrakona :)
Bestu kv. HB
það vantar alveg sárlega eina svona post-doc færslu :)
hlakka til að knúsa þig eftir 11 daga!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim