Romm púnsinn á Antigua er svalandi og á hvers manns vörum. Í gærkvöldi sat ég niðri við "bryggju" og svolgraði svoleiðis með vinnufélögunum á meðan við virtum fyrir okkur snekkjur ríka og fræga fólksins. Þær eru ýmist með þyrlu ofan á eða kafbát inní en allar skarta skínandi krómi og rósarvið sem fá mann til að sundla eilítið. Það er breitt bilið milli fátækra og ríkra á þessari paradísareyju. Hús, kofi, kamar, höll. Fræg er sagan af því þegar Bobby Brown elti Whitney á Cross Roads hælið en endaði svo í Crack Alley þar sem hann bjó í nokkrar vikur og hafði þá brúað hið breiða bil á örfáum dögum (hann kallar ekki allt ömmu sína hann Bobby) - eða svo sagði að minnsta kosti yfirforleifafræðingurinn hérna þar sem við stóðum í uppgerðu virki breska hersins frá 18. öld þar sem maður næstum býst við að sjá Johnny Deep bregða fyrir með eyeliner og hatt.
Hér eru líka kakkalakkar í hnífaparaskúffunni, maurar á baðherberginu og eðlur á svölunum.
Við erum búin að grafa holuna okkar hér sem var full af leirkerjum og leifum af máltíðum sem voru snæddar um 300 árum áður en Ingólfur henti súlunum fyrir borð. Beinagrindin sem stóð til að bjarga var farin í sjóinn. Á þriðjudaginn tökum við svo ferju yfir til Barbuda þar sem ný verkefni taka við - en fyrst þarf ég að sitja aðeins á svölunum og skrifa lítið skýrslukorn. Það er ekki leiðinlegt.

ég í vinnunni
gömul krukka

5 Ummæli:
Hljómar spennandi. Gaman að fá ágrip af ævi Bobby Brown líka :-).
Bið að heilsa captain Sparrow ef þú hittir hann.
Kveðja
Halli
Vá en spennandi,
Gangi þér vel og njóttu verunnar í blíðunni
Gott að vita af þér í hita og sól... Hér ýlfrar vindurinn og hryðjurnar berja utan glugga. Væri satt best að segja alveg til í að vera með þér að moka holur og skoða gamlar matarleifar...
Bestu kveðjur,
Edda
kannski að ég komi bara til þín næst
Dr. Ásta
Mikið skelfing væri ég til í að skála við þig í romm púnsi alla helgina og hlusta á gamla Whitney slagara!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim