fimmtudagur, apríl 29, 2010

Það eru að bresta á kosningar í Bretlandi og tjallinn er að fara á saumunum ... eða ekki.
Rosalega gaman að fylgjast með svona kosningabaráttu þegar maður má ekki kjósa og hefur aldrei kosið. Ég þarf ekkert að spá í hvort ég vilji breyta til og kjósa eitthvað annað með tilheyrandi röksemdafærslu, eða hvort ég ætli að halda mig við "minn" flokk sem ég hef alltaf kosið og öll mín fjölskylda og vinir mann fram af manni, og Jói sem er giftur Stínu er í framboði fyrir.

Í staðinn æsi ég Chris upp með að þykja Cameron sérstaklega sjarmerandi eða Brown hnyttinn og heillandi. Það er svo skemmtileg stemmning að fylgjast með rökræðum í sjónvarpi, minnir pínu á júróvisjón einhvern veginn. Popp og kók og kosningar - fullkomin þrenna. Þriðju og síðustu rökræðurnar eru í kvöld og svo kosningar næsta fimmtudag. Þá er ég að hugsa um að bjóða til kosningavöku heima hjá mér.

Hung parliament er dónaorð kosningabaráttunnar, það versta sem gæti gerst væri ef tveir flokkar þyrftu að vinna saman! Þá getur enginn bara vaðið fram með þjósti og beitt hryðjuverkalögum ville vekk ...

Æ, það væri nú samt gaman að mega kjósa. Ég myndi hiklaust leggja traust mitt á hinn unga Clegg. Hann lærði fornleifafræði og mannfræði svo við erum næstum bara alveg eins!

Spennandi ...

6 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ágústa þó! Ertu föðurlandssvikari, Brown er alls ekki hnyttinn né heillandi.
Annar segja spekingar að það sé gott fyrir Ísland ef Clegg vinnur af því að Árni Páll og hann eru vinir og þá gætum við kannski sloppið við Icesave :)
(meira samt svona grín held ég)
Mikið ofsalega væri ég til í að koma á kosningavökuna þína

kv. Hildur

3:08 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

já þið eruð bara næstum eins og tvíburar :) er árni líka vinur þinn?

3:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvað segir Chris ? Hvern vill hann fá ? Hr. Brúnn er búinn að vera, gleymir að hann er með hljóðnema þegar hann baktalar gamla frú og þarf svo að mæta í te hjá henni og biðjast afsökunar. Væri einmitt ekki fínt fyrir tjallann að fá einhvern nýjan eins og Clegg til að losna undan þessum tveimur gömlu klíkum. Sama og þyrfti að gerast á Íslandi.

Lifi byltingin, Jón Gnarr á þing !!

Halli

11:26 f.h.  
Blogger Ágústa sagði...

Chris er búinn að kjósa með póstatkvæði - hann kaus rétt!!

3:04 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

bretarnir eru heppnir með þetta kosningakerfi sitt að því leitinu til að ævagamlir flokkar virka ferskir því þeir komast aldrei að kjötkötlunum. samdaunninn (er hægt að nota þetta sem nafnorð?) í íslenskir flokkapólitík er svo rosalegur að 24% reykvíkinga ætla að kjósa jón gnarr! frekar kysi ég clegg ef mér stæði það til boða.
er hann ljósabekkjafélagi árna?

9:05 e.h.  
Anonymous Herdís sagði...

Noh, ekki vissi ég að Clegg væri SVONA MIKILL töffari! Ég er að hugsa um að fara kannski í sendiráðið og kjósa í íslenskum sveitarstjórnarkosningum á fimmtudaginn, svona upp á stemninguna, vildi að ég gæti síðan komið á kosningavöku hjá þér ástin mín.

12:20 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim