Nú er ég flutt til Bristol, og komin tími til að taka upp gamlan sið og blogga svolítið. Ég þurfti náttúrulega að breyta titli bloggsins í samræmi við nýjan dvalarstað og varð Bústna í Bristol fyir valinu. Það stuðlar nefninlega svo vel - sem er mikilvægt, og svo er það ekki fjarri sannleikanum heldur. Ein af mínum skýrustu minningum er þegar ég var fjögurra ára og sat uppi á ruslafötunni fyirir utan Eyrargötu 1. Tóta var eitthvað að stríða mér og sagði að ég væri svo bústin. Ég þvertók fyrir það og hljóp inn til pabba til að fá staðfestingu á því að ég væri sko ekki bústin....hvað sem það þýddi. Pabbi olli mér þó miklum vonbrigðum þegar hann svaraði já þú er svolítið bústin....það er að vera með miklar kinnar!!
Það fer mjög vel um mig hérna í suðvestur Englandi, veðurguðirnir leika við hvern sinn fingur og hitastigið yfirleitt í kringum 20 gráður. Skólinn gengur vel, nóg að gera og ég hef kynnst fullt af skemmtilegu fólki! Herbergið mitt er svona í minni kanntinum en staðsetningin er góð, alveg niðri í bæ, rétt eins og kárastígurinn minn í reykjavík. Heldur meira ónæði hér þó því Bristol búar virðast ekki gera neinn greinarmun á vikudögum þegar það kemur að barferðum og öðru svalllífi. Ég reyni því bara að taka þátt í því og læt það ekki fara í taugarnar á mér á milli þess sem ég les og les sem aldrei fyrr.
Bestu kveðjur úr sumar og sól í Bristol!
ágústa

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim