
Enn annar góður dagur í dag sól og sumar. Rigndi reyndar svakalega í gær, eins og hellt væri úr fötu. Í gær var halloween og menn og konur spókuðu sig í misskelfilegum búningum. Ég lét mér fátt um finnast og hélt mig við mánudagshefðina sem er að fara á the Bristol Ram og spila spurningaleik. Búin að fara nú örugglega 4 mánudaga í röð en hef aldrei unnið..... get yfirleitt bara svarað undir fimm spurningum (t.d gat ég íslenska fánann um daginn!) en málið er ekki að vinna heldur að vera með. Ég fór reyndar í búning á laugardagskvöldið og fór í partý til Andreu íslensku vinkonu minnar, hún er í sirkusskóla og partýið skrautlegt eftir því. Fólk sýndi ótrúlega færni í "bannað að koma við gólf".
Ég hef ekki enn bragðað dropa af bristol cream en það stendur til bóta...
En nú þarf ég að girða mig í brók og lesa svolítið, var mikið hugsað til Normu og Skúla þegar ég sá titilinn á greininni sem er næst á dagsrká "Excavation of a pit at 16 Tunsgate"!
Allavega læt fylgja eina mynd af brekkunni sem ég labba upp á hverjum degi í skólann, hún er brattari en hún virðist belíf jú mí.
Vona að það hafi hlýnað þarna fyrir norðan hjá ykkur svo Hildur geti hætt að nota ófærð sem afsökun fyrir að senda mér ekki bókina og lakkrísinn!!!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim